Landvernd virkan þátt í stefnumótun í umhverfismálum með gerð umsagna um fjölda þingmála, skipulagsmál sveitarfélaga, áætlanagerð og einstakar framkvæmdir á vegum einkaaðila og hins opinbera. Landvernd beitir sér einnig í ákvarðanatöku er varðar umhverfismál, m.a. með því að láta reyna á stjórnsýsluákvarðanir og reka mál fyrir dómstólum. Fulltrúar samtakanna eiga sæti í starfshópum á vegum hins opinbera, taka þátt í opnum fundum um margvísleg málefni og vekja athygli á umhverfismálum í fjölmiðlum. Samtökin virkja önnur félagasamtök og einstaklinga með sér í þessu starfi. Landvernd byggir vinnu sína á grundvelli árósasamningsins og innleiðingu hans í íslensk lög. Samningurinn veitir almenningi og félagasamtökum sem starfa að umhverfisvernd rétt til aðgangs að upplýsingum, þátttöku í ákvarðanatöku og aðgang að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum.