Ferðir og viðburðir Fréttir Álag á náttúruna vegna ferðamanna og leiðir til úrbóta 19.5.2015 Guðmundur Ingi Guðbrandsson 19.5.2015 Guðmundur Ingi Guðbrandsson Andrés Arnalds fagmálastjóri Landgræðslu ríkisins heldur fyrirlestur á vegum Landverndar og Landgræðslunnar miðvikudaginn 20. maí kl. 12-13 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands. Um fyrirlesturinn Hin ofurviðkvæma náttúra Íslands er hornsteinn vaxandi ferðaþjónustu, atvinnugreinar sem færir landsmönnum mestan erlendan gjaldeyrir. Álag á viðkvæma staði og ferðaleiðir er víða of mikið og afleiðingin er tímabil stórfelldra skemmda á viðkvæmri náttúru landsins. Það bíða fjölmörg og áríðandi verkefni ef tryggja á framtíð þessarar mikilvægu atvinnugreinar og efla fagmennsku við slíkar úrbætur. Hve vel eru stjórnvöld, stofnanir og hinir ýmsu hagsmunaaðilar í stakk búin í að vernda gullgæs ferðaþjónustunnar, náttúru Íslands? Hve vel hugum við að þeirri auðlegð sem felst í víðernum og fegurð landsins. Er litið á umhverfisáhrif ferðaþjónustunnar sem ferðamál en ekki umhverfismál? Um fyrirlesarann Andrés Arnalds er fagmálastjóri Landgræðslu ríkisins. Hann er menntaður í landbúnaðarfræðum frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri og sérfræðingur í vistfræði beitilanda og landgræðslu frá ríkisháskólunum í Washington og Colorado í Bandaríkjunum. Hann er áhugamaður um útivist og hefur ferðast víða bæði innan lands og utan. Tögg ferðaþjónusta fyrirlestur landgræðsla Náttúruvernd Vista sem PDF