Fréttir Andstaða við háspennulínu yfir Sprengisand eykst 31.3.2015 31.3.2015 Nú eru 43,4% því andvíg að hápennulína verði reist yfir Sprengisand en í sambærilegri könnun sem gerð var í ágúst 2012 voru 36% þeirrar skoðunar. Sömuleiðis hefur stuðningur við Sprengisandslínu minnkað. Í könnuninni 2012 voru 28% fylgjandi framkvæmdinni en eru nú einungis 25,4%. Gallup gerði könnunina fyrir Landvernd og Náttúruverndarsamtök Íslands 5. - 12. mars.Í síðustu viku kynntu samtökin könnun sem sýndi að stuðningur almennings við stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands hefur aukist umtalsvert miðað við sambærilega könnun árið 2011 og er nú yfir 60%. Af því má ráða að stuðningur við verndun hálendisins njóti vaxandi stuðnings í þjóðfélaginu. Framkvæmd þessarar skoðanakönnunar er hluti af hálendisverkefni Landverndar og Náttúruverndarsamtaka Íslands. Verkefnið nýtur stuðnings Náttúruverndarsjóðs Pálma Jónssonar og fjár sem safnaðist á tónleikunum Gætum garðsins sem haldnir voru samtökunum tveimur til stuðnings í mars 2014. Frekari upplýsingar um könnunina má sjá hér. Vista sem PDF