Ferðir og viðburðir Fréttir Fræðslustarf Dagskrá Alviðru sumarið 2013 21.6.2013 Salome Hallfreðsdóttir 21.6.2013 Salome Hallfreðsdóttir Alviðra í Ölfusi Dagskrá Landverndar með fræðslu og gönguferðum í fallegu umhverfi Alviðru sumarið 2013. Þátttaka ókeypis. miðvikudagur 3. júlí GANGA UPP Á INGÓLFSFJALL. Krefjandi ganga upp á Ingólfsfjall frá Alviðru, með glæsilegu útsýni yfir Suðurland. Eiríkur Valdimarsson þjóðfræðingur sér um leiðsögn. Farið af stað frá Alviðru klukkan 17. Tekur 3 klst. laugardagur 6. júlí GRASNYTJAR Í ALVIÐRU. Fræðsla og útivera í fögru umhverfi Alviðru fyrir alla fjölskylduna. Við lærum að þekkja nokkrar algengar íslenskar jurtir sem um aldir hafa verið nýttar í te, seyði, sem krydd og til matargerðar. Steinn Kárason annast dagskrána. Hefst klukkan 13. Tekur 2 til 3 klst. miðvikudagur 10. júlí GANGA UM ÖNDVERÐARNES. Létt ganga í fallegu umhverfi Sogsins. Eiríkur Valdimarsson þjóðfræðingur sér um leiðsögn. Farið af stað frá Alviðru klukkan 17. Tekur 2 klst. laugardagur 17. ágúst ALVIÐRUDAGUR. Náttúrufræðsla fyrir alla fjölskylduna á opnum degi í Alviðru. Hrefna Sigurjónsdóttir og Helena Óladóttir annast dagskrána. Tögg Alviðra Vista sem PDF