Fréttir Landvernd-starfið Náttúruvernd Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur - ljósmyndasýning 4.10.2019 Landvernd Ellert Grétarsson Náttúruperlan Eldvörp á Reykjanesi er algjörlega einstök. Eldvörp eru í hættu. 4.10.2019 Landvernd Margmiðlunarsýningin „Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur“ er samsýning Landverndar og Ólafs Sveinssonar í samstarfi við Norræna húsið og Framtíðarlandið. Sýningin er sett upp í tilefni af 50 ára afmæli Landverndar. Á þessari einstöku margmiðlunarsýningu með ljósmyndum, stuttmyndum og gagnvirkum upplýsingaskjám er fjallað um þær náttúruperlur sem hafa glatast og gætu glatast ef haldið verður áfram á sömu braut. Ísland er einstakt með sinni stórbrotnu og lítt snortnu náttúru með samspili jarðhita og jökla, gljúfra og gilja, stórra fjalla og fjölmargra vatnsfalla, víðáttumikilla auðna og viðkvæms gróðurs í óbyggðum víðernum sem eiga engan sinn líka. Það eru verðmæti sem ekki verða mæld í krónum og aurum, en verða þó sífellt meiri eftir því sem þau eru látin ósnortin lengur. Átökin um þessi verðmæti hafa staðið í áratugi og mikið hefur glatast vegna stórra framkvæmda eins og orkuvinnslu. Hjarta sýningarinnar slær í aðalsal Norræna hússins með þrem myndbandsverkum og stórum ljósmyndum um áhrifasvæði Kárahnjúkavirkjunar og Hvalárvirkjunar. Stór snertiskjár í anddyrinu með Náttúrukorti Framtíðarlandsins veitir yfirsýn yfir þau svæði á Íslandi sem fyrirhugað er að nýta til orkuframleiðslu eða nýta á annan hátt. Hið dýrmæta en viðkvæma dýraríki landsins í samspili við fyrrnefndar náttúruperlur er einnig í kastljósi sýningarinnar en óvenju lifandi og skemmtilegar myndir um villt dýr á Íslandi eru settar upp í Barnabókasafni Norræna hússins. Er ekki nóg komið af eyðileggingu? Sýningin mun standa yfir til 17. nóvember alla daga frá 10:00 til 17:00 í Norræna húsinu. Nánari upplýsingar má finna hér. Tögg Eldvörp Hvalá L50 ljósmyndasýning Náttúruvernd Vista sem PDF