Fréttir Fullorðinsfræðsla: Námskeið um menntun til sjálfbærrar þróunar 19.5.2014 Guðmundur Ingi Guðbrandsson 19.5.2014 Guðmundur Ingi Guðbrandsson Opnað hefur verið fyrir umsóknir um norrænt námskeið um menntun til sjálfbærrar þróunar fyrir fullorðna. Námskeiðið samstendur af fjórum vinnustofum sem hver er þriggja daga löng og fara fram í Noregi, Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi frá haustinu 2014 og fram til vors 2015. Auk þess vinna nemendur sjálfstætt verkefni samhliða og á milli vinnustofa. Námskeiðið er haldið fyrir tilstilli nokkurra félagasamtaka á Norðurlöndum sem hluti styrk til verkefnisins frá Norrænu ráðherranefndinni. Landvernd á aðild verkefninu. Nemendur þurfa einungis að greiða ferðakostnað og hér er því um einstakt tækifæri að ræða. Umsóknarfrestur er til 6. júní n.k. Nánari upplýsingar eru að finna í viðhengi og hlekk á umsóknina má finna hér. Information english_ Tögg menntun til sjálfbærrar þróunar námskeið norðurlönd Vista sem PDF