Málþing og fundir Fréttir Fundur um frumvarp til nýrra náttúruverndarlaga 17.2.2013 Guðmundur Ingi Guðbrandsson 17.2.2013 Guðmundur Ingi Guðbrandsson Landvernd og Stofnun Sæmundar fróða við Háskóla Íslands halda opinn fund um heildarendurskoðun náttúruverndarlöggjafar á Íslandi. Markmiðið með fundinum er að draga fram breytingar á núverandi lögum í heild sinni og ræða hvað er til bóta og hvað megi betur fara. Frumvarpið verður rætt út frá forsendum breytinga á löggjöfinni að mati nefndar um endurskoðun laganna, kynntar verða helstu breytingar miðað við núverandi lög og athugasemdir lagðar fram af nokkrum hagsmunaaðilum frá náttúruverndar- og útivistarsamtökum. Fundinum lýkur með pallborði og umræðum. Hér má að auki finna umsögn Landverndar um málið. Framsöguerindi: Forsendur breytinga á lögum um náttúruvernd: Aagot V. Óskarsdóttir, lögfræðingur og ritstjóri hvítbókar um löggjöf til verndar náttúru Íslands. Frumvarp til laga um náttúruvernd, helstu atriði og breytingar frá fyrri lögum: Mörður Árnason, alþingismaður. Athugasemdir áhugahóps um ferðafrelsi: Elín Björg Ragnarsdóttir, lögfræðingur. Athugasemdir Útivistar: Skúli H. Skúlason, framkvæmdastjóri Útivistar Athugasemdir Landverndar: Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar Pallborðsumræður með frummælendum í lokin. Auk þeirra mun Reynir Tómas Geirsson frá Kayakklúbbnum sitja í palliborði. Fundarstjóri er Guðrún Pétursdóttir, forstöðumaður Stofnunar Sæmundar fróða við Háskóla Íslands. Fundurinn verður haldinn í Norræna húsinu og hefst klukkan 20. Tögg fundur Landvernd Náttúruvernd Vista sem PDF