Fréttir Landvernd-starfið Guðmundur Ingi ráðinn framkvæmdastjóri 14.9.2011 Landvernd 14.9.2011 Landvernd Guðmundur Ingi Guðbrandsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Landverndar. Hann hefur undanfarin þrjú ár starfað að umhverfisrannsóknum á Stofnun Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun við Háskóla Íslands. Þar á undan starfaði hann við vistfræðirannsóknir og að alþjóðamálum hjá Landgræðslu ríkisins. Guðmundur Ingi hefur verið stundakennari í umhverfis- og vistfræði við HÍ síðastliðin fimm ár, auk þess að sinna afleysingum sem umsjónarmaður námsbrautar í umhverfis- og auðlindafræðum í hálft ár árið 2010. Guðmundur Ingi er með masterspróf í umhverfisfræðum frá Yale háskóla í Bandaríkjunum og BS próf í líffræði frá Háskóla Íslands. Tögg 2011 framkvæmdastjóri guðmundur ingi guðbrandsson Landvernd Vista sem PDF