Skrifstofan Grænfáninn Katrín Magnúsdóttir 27.3.2012 Landvernd 27.3.2012 Landvernd Katrín Magnúsdóttir er verkefnisstjóri Skóla á grænni grein. Katrín er líffræðingur að mennt og með M.A. gráðu í mannfræði með áherslu á umhverfis- og þróunarfræði. Hún hefur einnig lokið diplómanámi í kennslufræðum og viðbótarnámskeiðum í menntun til sjálfbærni. Katrín hefur sinnt ýmsum störfum í gegnum tíðina. Hún hefur m.a. starfað sem verkefnis- og tómstundastjóri hjá Nordjobb á Íslandi, raungreinakennari hjá Verzlunarskóla Íslands og forstöðumaður Sessljuhús umhverfis- og fræðsluseturs á Sólheimum. Auk þess var hún starfsnemi hjá Þróunarsamvinnustofnun Íslands í Namibíu og kenndi um tíma við alþjóðlegan heimavistarskóla í Kenýa. katrin (at) landvernd.is Tögg grænfáni katrín magnúsdóttir skóli á grænni grein starfsfólk Vista sem PDF