Málþing og fundir Fréttir Loftslagsverkefni Loftslagsmál Málþing um stefnu um loftslagsbreytingar í Evrópusambandinu og hérlendis 2.6.2014 Guðmundur Ingi Guðbrandsson 2.6.2014 Guðmundur Ingi Guðbrandsson Landvernd tekur þátt í opnum fundi með Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, Evrópustofu og Náttúruverndarsamtökum Íslands fimmtudaginn 5. júní kl. 13-16. Á málþinginu verður fjallað um stefnu Evrópusambandsins í loftslagsmálum og hvernig hún hefur áhrif á Íslandi í gegnum EES-samninginn. Er sambandið að standa sig nægilega vel í baráttunni gegn hlýnun jarðar? Á Íslandi er losun gróðurhúsalofttegunda á hvern íbúa með því mesta sem gerist í heiminum. Hvað eru íslensk stjórnvöld að gera til að draga úr þessari losun? Hvaða tækifæri eru til nýsköpunar í viðskiptageiranum á Íslandi? Þarf að breyta viðhorfum hérlendis? Opnunarávarp Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands Stefna Evrópusambandsins í loftslagsmálum og EES-samningurinn Samuel Flückiger, sérfræðingur í umhverfismálum hjá EFTA Gagnrýnin umfjöllun um stefnu Evrópusambandsins í loftslags- og orkumálum Wendel Trio, formaður Climate Action Network Europe Stefna og aðgerðir Íslands í loftslagsmálum Hugi Ólafsson, skrifstofustjóri í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu Tækifæri til nýsköpunar í viðskiptageiranum á Íslandi Bryndís Skúladóttir, forstöðumaður umhverfismála hjá Samtökum iðnaðarins Gerum minna - hreinskilið viðhorf til höfuðorsaka nútímaloftslagsbreytinga Finnur Guðmundarson Olguson, einn umsjónarmanna grugg.is, vefrits um umhverfismál Samantekt Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands Fundarstjóri: Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar Boðið verður upp á kaffiveitingar. Málþingið fer fram á ensku. Allir velkomnir. Tögg Loftslagsbreytingar málþing Vista sem PDF