Fréttir Mikill stuðningur við stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu 2.11.2011 Landvernd 2.11.2011 Landvernd Ný skoðanakönnun Capacent Gallup fyrir öll helstu náttúruverndarsamtök landsins sýnir að stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands nýtur mikils stuðnings meirihluta landsmanna. Spurt var: Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands? Helstu niðurstöður eru: 56% aðspurðra eru hlynntir stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu, 17,8% aðspurðra eru andvígir en 26,2% eru hvorki hlynntir né andvíg. Hugmyndin um þjóðgarð á miðhálendi Íslands á vísan stuðning meðal allra aldurshópa og íbúa allra landshluta. Mestur er stuðningurinn í Reykjavík en þar segjast 64% vera hlynnt stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu. Minnstur er stuðningurinn í Suðurkjördæmi en þar segist þó rétt innan við helmingur vera hlynntur stofnun þjóðgarðs eða 45%. Í lok næstu viku rennur út frestur til að skila athugasemdum við drög að þingsályktun um Rammaáætlun. Eftirtalin náttúruverndarsamtök telja að niðurstaða skoðanakönnunarinnar sé til marks um skýran vilja almennings til þess að vernda miðhálendið sem eina óraskaða heild; að öræfi landsins sé auðlind sem sífellt verður dýrmætari. Eftirfarandi samtök standa að skoðanakönnunni Eldvötn - samtök um náttúruvernd í Skaftárhreppi Félag um verndun hálendis Austurlands Framtíðarlandið Fuglavernd Jöklahópurinn Skagafirði Landvernd Náttúruvaktin Náttúruverndarsamtök Íslands Náttúruverndarsatök Suðurlands Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands Náttúruverndarsamtök Vestfjarða NAUST Sól á Suðurlandi SUNN Frekari upplýsingar veitir, Árni Finnsson, sími 8972437. Myndina tók Sigrún Pálsdóttir í leiðangri Landverndar um Torfajökulssvæðið 2010. Tögg almenningur álit meirihluti miðhálendið skoðanakönnun þjóðgarður Vista sem PDF