Ferðir og viðburðir Fréttir Myndasýning og kaffispjall í dag kl.18 á Austurvelli 29.1.2014 Salome Hallfreðsdóttir 29.1.2014 Salome Hallfreðsdóttir Landvernd býður öllum félagsmönnum og áhugafólki um vernd hálendisins í kaffispjall og myndasýningu á Austurvelli í dag, miðvikudag 29. janúar, milli kl. 18 og 19. Þingmönnum hefur verið boðið að koma og ræða við okkur um þær framkvæmdir sem fyrirhugaðar eru á hálendinu og þá sýn Landverndar að ekki beri að fórna fleiri náttúruperlum á svæðinu, heldur að vernda það gegn umræddum framkvæmdum. Uppi eru hugmyndir um vel á annan tug virkjana með tilheyrandi háspennulínum, uppbyggða vegi um Kjöl og Sprengisand, að ógleymdri stórri háspennulínu yfir Sprengisand. Framkvæmdirnar, ef fram ná að ganga, munu eyðileggja hálendið í þeirri mynd sem við þekkjum það. Í september í fyrra hóf Landvernd sérstakt baráttuverkefni til varnar hálendi Íslands sem ber heitið: Hálendið – hjarta landsins. Þessi viðburður er hluti af því verkefni. Á vefsíðunum www.hjartalandsins.is og http://heartoficeland.org er umfjöllun um fyrirhugaðar framkvæmdir á hálendinu og gefst fólki kostur á að skrifa undir þá kröfu Landverndar að hlífa hálendi Íslands. Verið öll velkomin í dag á Austurvöll í Reykjavík. Með góðum kveðjum, stjórn og starfsfólk Landverndar. Vista sem PDF