Grænfáninn - Skólar á grænni grein Hugmyndir Nemendur Grenivíkurskóla færðu bæjarbúum jólagjöf 18.12.2017 Margrét Hugadóttir 18.12.2017 Margrét Hugadóttir Nemendur Grenivíkurskóla tóku sig til og saumuðu taupoka handa öllum íbúum bæjarfélagsins. Með þessu vilja nemendur og starfsfólk skólans hvetja íbúa til að nota fjölnotapoka og draga úr plastpokanotkun á aðventunni. Verkefnið er unnið af öllum í skólanum og hefur víðtæk áhrif út í samfélagið. Grænfánaverkefni Landverndar Skólar á grænni grein byggir á sjö skrefum sem skólar þurfa að stíga til að fá að flagga grænum fána. Verkefni Grenivíkurskóla fellur vel að sjötta skrefi verkefnisins; Að upplýsa og fá aðra með. Skólar eru hvattir til að tengjast og vinna með öðrum í nærsamfélaginu, s.s. íbúum, fyrirtækjum og stofnunum. Alls kyns opnar sýningar á verkum nemenda í nærsamfélaginu og kynningar í skólanum eða í fjölmiðlum upplýsa samfélagið um framgang verkefnisins. Það má því segja að jólaverkefni Grenivíkurskóla falli vel að þessum hluta verkefnisins. Til hamingju Grenivíkurskóli og Grenivík! Hér má sjá frétt á RÚV um verkefnið. Tögg jól plast Sjötta skref Vista sem PDF