Fréttir Landvernd-starfið Alþjóðlegt samstarf Hreinsum Ísland Skipulagning Strandhreinsunar Útgáfa Niðurstöður Norrænnar strandhreinsunar 2017 26.3.2018 Rannveig Magnúsdóttir 26.3.2018 Rannveig Magnúsdóttir Landvernd, ásamt systursamtökum á Norðulöndum, hefur gefið út niðurstöður Norrænnar strandhreinsunar sem fór fram þann 5. maí 2017. Strandhreinsanir áttu sér stað samtímis á öllum Norðurlöndunum og á Íslandi var hreinsað á nokkrum stöðum á Snæfellsnesi, auk annarra staða á landinu. Landvernd vann náið að skipulagningu strandhreinsunarinnar með Svæðisgarðinum Snæfellsnesi, EarthCheck Snæfellsnesi, Lionshreyfingunni á Íslandi og Bláa hernum. Niðurstöður sýna að uppruni plastsins sem safnaðist er að stórum hluta úr iðnaði, sjávarútvegi og umbúðaplasti. Rannsóknin var unnin í samvinnu Landverndar og Norrænna systursamtaka, Hold Norge Rent, Håll Sverige Rent, Hold Danmark Rent, Pidä Saaristo Siistinä ry (Finnland) og Ringrås (Færeyjar). Landvernd heldur áfram með verkefnið Hreinsum Ísland í ár og undir þeim hatti verða tvö stór árvekniátök. Fyrra átakið hefst á Degi umhverfisins þann 25. apríl og skipulagðar verða samstilltar hreinsanir á öllum Norðurlöndunum þann 5. maí. Seinna átakið verður í vikunni 10.-16. september þar sem Íslendingar verða hvattir til að hreinsa strendur og í kingum sig í tengslum við Alheimshreinsun sem er þann 15. september. Report Nordic Coastal Clean Up 2017.pdf Vista sem PDF