Þátttaka í ákvarðanatöku Óheft malarnám veldur óþarfa spjöllum 4.6.2003 Landvernd 4.6.2003 Landvernd Stjórn Landverndar tekur undir þær athugasemdir sem fram hafa komið um náttúruspjöll vegna óhefts malarnáms í Ingólfsfjalli í Árnessýslu. Stjórnin bendir á að til eru fjölmargir kostir til malarnáms og því er mögulegt að afla nauðsynlegra jarðefna án þess að spilla merkum jarðminjum og kennileitum í landslagi. Stjórnin hvetur umhverfisráðherra, ríkisstjórnina og Alþingi til að gera nauðsynlegar breytingar á lögum svo koma megi í veg fyrir óþarfa spjöll á náttúru og landslagi vegna malartöku í eldri námum. Þá hvetur stjórn Landverndar bæjaryfirvöld í Kópavogi, Seltjarnarnesi og sveitarfélaginu Ölfusi að grípa tafarlaust til aðgerða svo koma megi í veg fyrir að örlög Vífilsfells verði þau sömu og Ingólfsfjalls. Samþykkt á stjórnarfundi 4. júní 2003. Tögg ályktanir Ingólfsfjall Malarnám Malarnám Vista sem PDF