Fréttir Opinn fundur um umhverfisstefnu stjórnmálaflokkanna Fuglavernd, Landvernd og Náttúruverndarsamtök Íslands efna til opins fundar mánudaginn 16. október um stefnu stjórnmálaflokkanna í umhverfismálum. Fundurinn verður haldinn í Norræna húsinu og hefst kl. 20. Fulltrúar stjórnmálaflokkanna verða spurðir um stefnu þeirra varðandi tvö meginmál: 1) Stofnun þjóðgarðs á hálendi Íslands, hver er stefna framboðsins? 2) Hvernig skal vernda lífríki hafsins – hér heima og á alþjóðavettvangi - gegn mengun, súrnun, og öðrum skaðlegum áhrifum loftslagsbreytinga? Að kynningum loknum munu fundargestir fá tækifæri til að spyrja fulltrúa stjórnmálaflokkanna spurninga úr sal um stefnu þeirra í umhverfis- og náttúruverndarmálum. Nánari upplýsingar um viðburðinn má nálgast á Facebook. Tögg fundur kosningar stjórnvöld Vista sem PDF