Málþing og fundir Fréttir Myndskeið Orkunýtingarflokkur, biðflokkur eða verndarflokkur? 11.10.2011 Landvernd 11.10.2011 Landvernd Laugardagsfundur Landverndar í Farfuglaheimilinu í Laugardal 15. október kl. 11:00. Landvernd boðar til opins fundar um drög að þingsályktunartillögu um vernd og orkunýtingu náttúrusvæða. (www.rammaaaetlun.is). Í drögum iðnaðarráðherra og umhverfisráðherra er gert ráð fyrir skiptingu svæða í orkunýtingarflokk, biðflokk og verndarflokk. Á laugardagsfundinum mun Friðrik Dagur Arnarson, fulltrúi frjálsra félagasamtaka í verkefnisstjórn um Rammaáætlun, flytja erindi um tillögudrög iðnaðarráðherra og umhverfisráðherra. Í kjölfarið verður opnað fyrir umræður. Félagsmenn Landverndar og annað áhugafólk um náttúruvernd er hvatt til að mæta og taka þátt í umræðum um þetta mikilvæga mál. Heitt á könnunni. Náttúruverndarsamtök vinna nú að sameiginlegri umsögn um tillögurnar, en umsagnarfrestur er til 11. nóvember. Landvernd hvetur almenning til að kynna sér tillögurnar og koma skoðunum sínum á framfæri. Sjá myndband: Tögg fundur Náttúrusvæði orkunýting rammaáætlun vernd þingsályktunartillaga Vista sem PDF