Mývatn Stjórnsýslukærur Fréttir Ramsar rannsaki áhrif jarðvarmavirkjunar á lífríki Mývatns 28.9.2012 28.9.2012 Landvernd og Fuglavernd hafa sent skrifstofu Ramsar samningsins erindi þar sem farið er fram á að samningurinn rannsaki möguleg áhrif 45-90 MW jarðvarmavirkjunar Landsvirkjunar í Bjarnarflagi á lífríki Mývatns. Mývatns- Laxársvæðið er eitt þriggja Ramsarsvæða á Íslandi sem njóta verndar samkvæmt samningnum, en hann fjallar um vernd votlendis sem hefur alþjóðlegt gildi, ekki síst vegna fuglalífs. Landvernd og Fuglavernd fara þess á leit við Ramsarskrifstofuna að hún grípi til eftirfarandi aðgerða: Krefji íslensk stjórnvöld, sem bera ábyrgð á framfylgd samningsins hér á landi, um upplýsingar um þær hættur sem kunni að steðji að vistkerfi Mývatns og Laxár frá hinni fyrirhuguðu jarðhitavirkjun Landsvirkjunar í Bjarnarflagi. Taki til skoðunar að tilnefna Mývatn-Laxá svæði á Montreux-lista samningsins sem er nokkurs konar válisti Ramsarsvæða sem sérstök hætta steðjar að og eru undir sérstöku eftirliti Ramsar-samningsins. Krefji íslensk stjórnvöld um viðunandi eftirlit og vöktun á lífríki Mývatns. Í þessu sambandi benda samtökin á að sérstaklega þurfi að leita svara við spurningum sem varða mengun frá virkjuninni. Þar ber hæst förgun affallsvatns og möguleg kæling á grunnvatnsstreymi sem getur minnkað kísilstreymi til Mývatns, sem er ein undirstaða fjölbreytts lífríkis vatnsins. Einnig benda samtökin á að Landsvirkjun hefur ekki útskýrt hvernig fyrirtækið hyggist standast kröfur varðandi brennisteinsmengun frá virkjuninni. Complaint to the Ramsar Secretariat_Bjarnarflag Geothermal Plant_sept2012_drog Threats to the Myvatn-Laxa Ecological Character_Sept26 2012 Tögg Bjarnarflagsvirkjun Myvatn Mývatn Ramsar Vista sem PDF