Fréttir Stjórnarstarf og aðalfundir Tilkynning frá uppstillingarnefnd 17.5.2011 Landvernd 17.5.2011 Landvernd Stjórn Landverndar hefur skipað þau Heiðrúnu Guðmundsdóttur, Tryggva Felixson og Þóru Ellen Þórhallsdóttur í uppstillingarnefnd vegna aðalfundar Landverndar sem haldinn verður fimmtudaginn 26. maí nk. Eins og fram kemur í lögum samtakanna eru formaður og fjórir stjórnarmenn kosnir annað árið, en fimm stjórnarmenn hitt árið. Á komandi aðalfundi á að kjósa fjóra stjórnarmenn og formann í stjórn til tveggja ára. Til að tryggja að fimm séu í kjöri á hverjum aðalfundi á einnig að kjósa tvo stjórnarmenn til eins árs. Auk þess kýs aðalfundur skoðunarmenn reikninga samtakanna. Þrír stjórnarmenn sem eru í kjöri, þau Jón S. Ólafsson, Hrefna Sigurjónsdóttir og Björgólfur Thorsteinsson formaður Landverndar gefa kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Þau Fríða Björg Eðvarðsdóttir, Jóna Fanney Friðriksdóttir og Sveinbjörn Björnsson eru ekki í kjöri og halda áfram í stjórn. Fjórir stjórnarmenn gefa ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu (þrír vegna brottflutnings og einn sökum anna). Þeir sem vilja koma ábendingum á framfæri við uppstillingarnefnd geta sent skilaboð á netfangið landvernd@landvernd.is. Ábendingar þurfa að berast eigi síðar en sunnudaginn 22. maí. Farið verður með allar ábendingar sem trúnaðarmál. Við minnum á að til þess að öðlast atkvæðisrétt á aðalfundi þurfa félagar og aðildarfélög að hafa greitt árgjaldið 2010-2011. Vinsamlegast skráið þátttöku í síma 552 5242 eða sendið tölvupóst á landvernd@landvernd.is Fundurinn er öllum opinn og nýir félagar eru velkomnir. Tögg 2011 aðalfundur Nauthóll uppstilling Vista sem PDF