Fréttir Stjórnarstarf og aðalfundir Við minnum á aðalfundinn Stjórn Landverndar boðar til aðalfundar samtakanna þriðjudaginn 30. apríl klukkan 17 (afhending atkvæðaseðla hefst þegar húsið opnar kl. 16:30) í Rúgbrauðsgerðinni, 1. hæð, að Borgartúni 6, 105 Reykjavík. Aðgengi er gott fyrir fólk með hreyfihömlun. Dagskrá fundarins má nálgast hér að neðan. Mikilvægt er að skrá sig fyrir fundinn. Skráning Í stjórn Landverndar sitja tíu manns. Á aðalfundi 2019 verður kosið um formann stjórnar til tveggja ára og fjóra stjórnarmenn til tveggja ára. Allir kjörgengir félagsmenn geta boðið sig fram á fundinum. Þeir sem vilja tilkynna um framboð fyrirfram eru beðnir um að senda tölvupóst á lovisa(hja)landvernd.is Við hvetjum þig til að mæta og hafa áhrif á stefnu og störf samtakanna. Við minnum á að þau sem enn skulda félagsgjöld verða að hafa greitt þau fyrir aðalfund til að tryggja sér atkvæðisrétt og kjörgengi á fundinum. Jafnframt hvetjum við ykkur til að taka nýja félaga með á fundinn. Hægt verður að greiða félagsgjöld á fundinum. Dagskrá: 16:30 Húsið opnað og skráning fundargesta 17:00 Setning aðalfundar og kjör fundarstjóra og fundarritara 17:05 Aðalfundarstörf Kjör í nefndir fundarins, kjörnefnd og allsherjarnefnd Skýrsla stjórnar Ársreikningur 2018 Lagabreytingar Stefna Landverndar: kynning, umræður og kosning Kjör endurskoðanda og skoðunarmanna reikninga Kosning stjórnar. Formannskjör og fjórir aðalmenn 18:40 Landvernd 50 ára 18:45 Léttur kvöldverður í boði Landverndar 19:15 Kynning ályktana og umræður Ályktanir stjórnar Nýjar ályktanir 19:45 Hugvekja - Sævar Helgi Bragason 20:00 Niðurstaða stjórnarkjörs 20:10 Afgreiðsla ályktana 20:20 Önnur mál 20:30 Aðalfundi slitið 20:35 Léttar veitingar 21:35 Húsið lokar Hér má nálgast fundargögn: Drög að stefnu samtakanna Tillögur stjórnar að ályktunum fundarins Tillaga að lagabreytingu Lög Landverndar Staðsetning Fundurinn fer fram á 1. hæð Rúgbrauðsgerðarinnar, Borgartúni 6, 105 Reykjavík. Tögg aðalfundur aðalfundur Landverndar Vista sem PDF