Fréttir Stjórnarstarf og aðalfundir Aðalfundur Landverndar 5. apríl n.k. 28.3.2014 Guðmundur Ingi Guðbrandsson 28.3.2014 Guðmundur Ingi Guðbrandsson Stjórn Landverndar minnir á aðalfund félagsins laugardaginn 5. apríl n.k. kl. 13-17:30 í sal Ferðafélags Íslands, Mörkinni 6 í Reykjavík. Dagskrá fundarins, lög samtakanna, lagabreytingartillögur og skýrslu nafnanefndar má finna í viðhengi. Við hvetjum ykkur til að mæta og hafa áhrif á stefnu og störf samtakanna. Þá minnum við þau á sem enn skulda félagsgjöld að greiða þau fyrir aðalfund til að tryggja sér atkvæðisrétt og kjörgengi á fundinum. Jafnframt hvetjum við ykkur til að taka nýja félaga með á fundinn. Hægt er að greiða félagsgjöld beint á fundinum. Sérstök athygli er vakin á því að Gunnsteinn Ólafsson, formaður Hraunavina, heldur erindi um reynslu sína af náttúruverndarbaráttunni í Gálgahrauni. Aðalfundi Landverndar lýkur að þessu sinni með samverustund félagsmanna og léttum veitingum. Niðurstaða nafnanefndar Nafnanefnd kom fram með þrjár tillögur að nafni samtakanna (sjá skýrslu nafnanefndar í viðhengi). Hinar tvær síðari verða því lagðar til sem lagabreytingatillögur nefndarinnar við 1. gr. laga samtakanna (sjá lagabreytingatillögur í viðhengi). Tillögur nefndarinnar eru: 1. Landvernd, landgræðslu- og umhverfisverndarsamtök Íslands. Rök: Nafni samtakanna verði ekki breytt, það á sér sögulegar skýringar. 2. Landvernd, samtök um náttúruvernd og umhverfismennt. Rök: Tillaga stjórnar á síðasta aðalfundi með breytingum sem fram komu í umræðum á fundinum. Nafnið er lýsandi fyrir meginverkefni samtakanna. 3. Landvernd Rök: Samtökin þurfa ekki að skilgreina sig frekar með undirtitli í nafni. Nafnið eitt og sér hefur þegar skapað samtökunum sterkan sess í vitund þjóðarinnar. Undirtitillinn er sjaldan notaður og skilgreining samtakanna og markmið þeirra koma fram í lögum þeirra. Með von um að sjá ykkur sem flest, stjórn og starfsfólk Landverndar. Dagskra adalfundar Landverndar 2014_LOKA Log Landverndar 2012_samthykkt a adalfundi 12mai2012 Skyrsla nafnanefndar 2014 Tillaga ad lagabreytingu_Adalfundur Landverndar 2014 Tögg aðalfundur Vista sem PDF