Fréttir Bláfáninn Bláfáninn afhentur 12.7.2016 Salome Hallfreðsdóttir 12.7.2016 Salome Hallfreðsdóttir Bláfáninn hefur nú verið afhentur með viðhöfn á flestum þeim stöðum sem sóttu um viðurkenninguna hér á landi í ár. Aldrei hafa fleiri flaggað Bláfánanum á Íslandi en 13 staðir og fyrirtæki fengu vottunina árið 2016. Níu handhafar sóttu um endurnýjun á Bláfánanum en fjórir fengu afhent í fyrsta sinn og eru það allt ferðaþjónustuaðilar í sjávarferðamennsku. Handhafar Bláfánans í ár eru: Þjónustuaðilar í sjávarferðamennsku Ambassador á Akureyri Elding í Reykjavík Special Tours í Reykjavík Whale Safari í Reykjavík Baðstrendur Bláa lónið Langisandur á Akranesi Ylströndin í Nauthólsvík Smábátahafnir Smábátahöfnin á Bíldudal Smábátahöfnin á Patreksfirði Smábátahöfnin á Suðureyri Smábátahöfnin í Stykkishólmi Smábátahöfnin við Hafnarhólma á Borgarfirði eystri Fossvogshöfn í Kópavogi Við hjá Landvernd óskum handhöfum Bláfánans innilega til hamingju með vottunina og hvetjum þá áfram á braut náttúruverndar og gæðamála. Tögg afhending bláfáni Blue Flag fréttir Vista sem PDF