Mývatn Myndskeið Frétt á RUV "Vilja stöðva framkvæmdir 7.10.2012 7.10.2012 Stjórn Landverndar hefur sent stjórn Landsvirkjunar bréf þar sem farið er fram á að Landsvirkjun stöðvi nú þegar framkvæmdir fyrirtækisins við fyrirhugaða 45-90 MW Bjarnarflagsvirkjun þar til rammaáætlun hefur verið samþykkt á Alþingi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem stjórn Landverndar hefur sent frá sér. Þar segir einnig að stjórnin fari fram á það við Landsvirkjun að hún vinni nýtt mat á umhverfisáhrifum virkjunarinnar en núgildandi mat er að verða tíu ára gamalt. Á undanförnum tíu árum hafa orkufyrirtækin öðlast mikilvæga reynslu af rekstri jarðvarmavirkjana og umhverfisáhrifum þeirra sem gæti haft áhrif á niðurstöðu nýs umhverfismats. Í þessu sambandi bendir stjórn Landsvirkjunar sérstaklega á spurningar sem hafa vaknað um mengun frá fyrirhugaðri virkjun, bæði affallsvatns og brennisteinsvetnis. Einnig getur möguleg kæling á grunnvatnsstreymi í kjölfar orkuvinnslu minnkað kísilstreymi til Mývatns, sem er ein undirstaða fjölbreytss lífríkis vatnsins, segir í tilkynningu frá stjórn Landverndar. Þá kemur fram í fréttatilkynningunni að einstakt lífríki Mývatns skapar því sérstöðu á heimsvísu. Þess vegna segir í nýsamþykktri verndaráætlun fyrir Mývatn og Laxá að það sé skylda núlifandi kynslóðar að varðveita sérstöðu svæðsins Tögg Bjarnarflagsvirkjun Myvatn Myvatn RUV Vista sem PDF