Fréttir Græn og væn Hreinsum Ísland Hreinsum Ísland: Ævar Þór Benediktsson útskýrir af hverju plast á ekki heima í sjónum 4.5.2017 Rannveig Magnúsdóttir 4.5.2017 Rannveig Magnúsdóttir Á degi umhverfisins hleypti Landvernd af stokkunum nýju strandhreinsunarátaki; Hreinsum Ísland. Vekjum við athygli á þeim hættum sem fylgja plastmengun í hafi. Við hvetjum fólk til að nota minna plast, kaupa minna og endurvinna. Hægt er að skipuleggja sína eigin strandhreinsun og veitir Landvernd góð ráð á síðunni hreinsumisland.is. Ævar Þór Benediktsson, oft betur þekktur sem Ævar vísindamaður gekk í lið með Landvernd og er hér með mikilvæg skilaboð um plastmengun í sjó og hvað við sem einstaklingar getum gert til að taka þátt í að minnka plastmengun. Tögg plast sjór Ævar vísindamaður Ævar Þór Vista sem PDF