Þátttaka í ákvarðanatöku Umsagnir Þingsályktunartillaga um vernd og nýtingu landsvæða 8.5.2012 Guðmundur Ingi Guðbrandsson 8.5.2012 Guðmundur Ingi Guðbrandsson Stjórn Landverndar tekur undir umsögn 13 náttúruverndarsamtaka um drög að þingsályktunartillögu um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða sem send var ráðherrum iðnaðar og umhverfis þann 11. nóvember sl. Náttúruverndarþing 2012 sem haldið var 28. apríl sl. lýsti einnig yfir stuðningi við sömu umsögn. Stjórn Landverndar er fylgjandi þeirri aðferðafræði að skipta virkjanahugmyndum í orkunýtingar-, bið- og verndarflokka og telur það auðvelda yfirsýn, upplýsta ákvarðanatöku og langtíma stefnumörkun við vernd og orkunýtingu landsvæða. Stjórn Landverndar telur að fyrirliggjandi þingsályktunartillaga sé langt frá því að taka nægilegt tillit til til nokkurra afar mikilvægra þátta við jafn þýðingarmikla stefnumótun og gerð verndar- og orkunýtingaráætlunar er. Þar ber helst að nefna: (i) varúðarreglu umhverfisréttar og óvissu um áhrif virkjana, ekki síst í jarðvarma, (ii) hver raunveruleg þörf á orkuöflun á næstu árum er, og (iii) skyldu sveitarfélaga til að staðfesta verndar- og orkunýtingaráætlunar í skipulagsáætlunum sínum. Nánari útlistun á athugasemdum Landverndar má finna í umsögninni hér að neðan. Umsögn Landverndar um vernd og orkunýtingu landsvaeda_8mai2012.pdf Tögg orkunýting Umsagnir umsögn þingsályktunartillaga Vista sem PDF