Fréttir Táknræn gjöf afhent iðnaðar og viðskiptaráðherra 29.1.2015 29.1.2015 Landvernd, Ferðafélag Íslands, Ferðaklúbburinn 4x4, SAMÚT og Útivist munu í dag kl 10:15 afhenda Ragnheiði Elínu Árnadóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra tákræna gjöf fyrir utan Alþingi. Gjöfin verður afhent til að minna ráðherra á mikilvægi almannaréttarins sem félögin telja að lög um náttúrupassa brjóti gegn, en þegar þingfundur hefst kl 10:30 mun ráðherra mæla fyrir lögum um náttúrupassa. Við hvetjum félagsmenn okkar til að mæta á staðinn og sýna stuðning í verki Tögg náttúrupassi Ragnheiður Elín Árnadóttir Vista sem PDF