Umsagnir Fréttir Áherslur Landverndar vegna stefnumótunar um lagningu raflína í jörð Landvernd hefur sent ráðherranefnd áherslur sínar vegna stefnumótunar um lagningu raflína í jörð. Lagning raflína, hvort heldur sem er í lofti eða í jörð, veldur alltaf einhverjum umhverfisáhrifum. Þau áhrif eru þó mun meiri við hærri spennustig raflína, enda um mun fyrirferðameiri mannvirki að ræða. Þess vegna skiptir miklu máli að þörfin fyrir lagningu raflína sé skýr og óumdeild áður en ráðist er í famkvæmdir. Þetta er grundvallaratriði sem verður að liggja að baki allri stefnumótun um lagningu raflína, hvort heldur sem er í jörð eða í lofti. Athugasemdir Landverndar má finna í umsögninni hér fyrir neðan. Motun stefnu um raflinur i jord_athugasemdir Landverndar_14juni2012.pdf Tögg 2012 raflínur Umsagnir umsögn Vista sem PDF