Þátttaka í ákvarðanatöku Fréttir Alþingi klári náttúruverndarfrumvarp fyrir þinglok 13.3.2013 Guðmundur Ingi Guðbrandsson 13.3.2013 Guðmundur Ingi Guðbrandsson Landvernd hefur sent alþingismönnum áskorun þar sem farið er fram á að Alþingi ljúki umfjöllun og kjósi um frumvarp til laga um náttúruvernd. Áskorunin fer hér á eftir. "Áskorun til alþingismanna vegna frumvarps til laga um náttúruvernd Landvernd skorar á alþingismenn að ljúka umræðu um frumvarp til laga um náttúruvernd og kjósa um frumvarpið áður en þingi lýkur nú í vikunni. Landvernd er í flestum atriðum sammála frumvarpinu og styður það í grundvallaratriðum. Frumvarpið felur í sér heildsteyptari og skýrari lagaumgjörð en við höfum áður haft um vernd íslenskrar náttúru. Samtökin fagna ýmsum nýmælum í lögunum og skerptum áherslum í sumum málaflokkum. Hér má nefna skýrari markmiðssetningu, kafla um meginreglur, aðlögun friðlýsingaflokka að alþjóðlegum viðmiðum, heimild til friðlýsingar heilla vatnasviða, viðbætur og breytingar á kafla um vernd jarðminja, vistkerfa, vistgerða og tegunda, kafla um framandi tegundir, akstur utan vega, vöktun náttúrunnar og bætt þvingunarúrræði stjórnvalda til að framfylgja lögunum. Samtökin hafa jafnframt komið á framfæri ítarlegum athugasemdum sínum til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis og hvetja alþingismenn til að kynna sér þær vel og taka tillit til þeirra." Tögg Alþingi Áskorun Náttúruvernd Náttúruverndarfélög Vista sem PDF