Þátttaka í ákvarðanatöku Grænlendingar dragi úr fuglaveiðum 25.8.2003 Landvernd 25.8.2003 Landvernd Formaður og framkvæmdastjóri Landverndar sóttur árlegan fund norrænna náttúru- og umhverfisverndarsamtaka sem haldinn var í Finnlandi dagana 15. -17. ágúst. Á fundinum var m.a. fjallað um fuglaveiðar í Grænlandi, en fram hefur komið að veiðiálag er talsvert meira en tilteknir stofnar þola. Það var ákveðið að styðja kröfu grænlensku náttúruverndarsamtakanna UPPIKs þess efnis að veiðar á fuglum í Grænlandi á varptíma verði minnkaðar. Þá var einnig ákveðið að taka undir tillögur Evrópusambandsins um reglur um veiðarfæri sem miða að því að draga úr líkum á því að smáhveli eins og höfrungar og grindhvalir festist í veiðarfærum og drepist. Á fundinum var líka rætt um hvaða kröfur eigi að gera til svæða sem ákveðið er að fella undir þjóðgarða. Danir eru nú að kanna stofnun fyrstu þjóðgarða þar í landi og vegna þéttbýlis virðist ljóst að þjóðgarðar þeirra geti ekki uppfyllt þær kröfur sem gerða eru til þjóðgarða í Noregi, Svíþjóð og á Íslandi. Tögg Finnland fuglaveiðar Grænland Náttúruvernd Umhverfisvernd Vista sem PDF