- - - Eldra efni - - - Utanvegaakstur Ísland ,,Eldorado" fyrir utanvegaakstur 18.8.2004 Landvernd 18.8.2004 Landvernd Á heimasíðu Smyril-line mátti finna eftirfarandi texta: ,,ICELAND - The Island of Fire and Ice Unique experiences await you in Iceland. Iceland is an Eldorado for off-roaders, and also has much to offer those interested in riding, hiking or fishing. Untamed nature, glaciers volcanos and hot springs. ”The Island of Fire and Ice”. Take your off-roader and find out what challenges await you inland, or take your family car and explore the whole island by following the coastal road.” Akstur utan vega á sandi getur skaðað gróður og haft neikvæð áhrif á ásýnd landsins, eins og sjá má á myndinni Í bréfi Landverndar er fyrirtækið Smyril-line minnt á að akstur utan vega veldur skaða á gróðri og spillir ásýnd lands. Þá segir að utanvegaakstur sé viðvarandi vandi á Íslandi og mikilvægt að allir ábyrgir aðilir taki höndum saman til að takmarka hann. Ekki síst er mikilvægt að aðilar í ferðaþjónustu upplýsi viðskiptavini sýna um þetta mál. Í bréfi Landverndar er vístað í náttúruverndarlögum (1999 nr. 44) þar sem segir: 17. gr. Akstur utan vega. Bannað er að aka vélknúnum ökutækjum utan vega. Þó er heimilt að aka slíkum tækjum á jöklum, svo og á snjó utan vega utan þéttbýlis svo fremi sem jörð er snævi þakin og frosin. Umhverfisráðherra kveður, að fengnum tillögum [Umhverfisstofnunar],1) í reglugerð2) á um aðrar undanþágur frá banni skv. 1. málsl. 1. mgr., m.a. vegna starfa manna við landbúnað, landmælingar, línu- og vegalagnir og rannsóknir. Ráðherra getur í reglugerð, að fengnum tillögum [Umhverfisstofnunar],1) takmarkað eða bannað akstur á jöklum og á snjó þar sem hætta er á náttúruspjöllum eða óþægindum fyrir aðra sem þar eru á ferð. Ólögmætur akstur utan vega varðar refsingu, sbr. 76. gr. Í bréfinu óskar Landvernd eftir því að Smyril-line breyti upplýsingum á heimasíðu sinn um akstur utan vega á Íslandi og minni væntanlega viðskiptavini sína á að utanvegaakstur er ekki heimill, sbr. 17. gr. náttúruverndarlaga. Tögg Utanvegaakstur Vista sem PDF