Fréttir Sérfræðingur við verkefnið Skólar á grænni grein - Grænfánaverkefni Landverndar 18.5.2019 Katrín Magnúsdóttir 18.5.2019 Katrín Magnúsdóttir Landvernd óskar eftir að ráða sérfræðing við verkefnið Skólar á grænni grein - Grænfánaverkefnið. Verkefnið er alþjóðlegt menntaverkefni um umhverfismál og sjálfbærni sem rekið er í hátt í 200 skólum á öllum skólastigum á Íslandi. Um er að ræða 75% stöðu frá 1. september 2019 með möguleika á aukningu á árinu 2020. Starfssvið Úttektir á umhverfisstarfi þátttökuskóla Kynningar og ráðgjöf í skólum um umhverfismál og sjálfbærni Ábyrgð á sérverkefnum um kennslu lífbreytileika og loftslagsbreytinga Þátttaka í öðrum verkefnum Landverndar Gagnaöflun og -úrvinnsla Starfið felur í sér allmörg ferðalög innanlands Menntun og hæfniskröfur Háskólapróf á sviði menntavísinda Starfsreynsla og þekking á sviði umhverfisfræða og sjálfbærni Þekking á menntun til sjálfbærni Reynsla af skólastarfi í leik- eða grunnskóla Góðir samskiptahæfileikar Frumkvæði sjálfstæði og jákvæðni í starfi Öguð og skipulögð vinnubrögð Umsókn og frestur Umsókn þarf að fylgja ferilskrá og greinagerð þar sem ástæða umsóknar eru útlistuð, hæfni viðkomandi til að gegna starfinu er lýst ásamt upplýsingum um tvo meðmælendur. Umsóknir skulu sendar á caitlin@landvernd.is merktar „Grænfánaumsókn“. Umsóknarfrestur er til 1. júní 2019 Nánari upplýsingar veitir Katrín Magnúsdóttir verkefnisstjóri Skóla á grænni grein, katrin@landvernd.is, s. 552-5242. Tögg atvinna graenfaninn grænfáninn skolar a graenni grein skólar á grænni grein starf Vista sem PDF