Fréttir Sprungur og áhætta við Kárahnjúkavirkjun 28.8.2006 Landvernd 28.8.2006 Landvernd Ljósmynd Steinar Hugi. Í tengslum við mat á umhverfisáhrifum fékk Landvernd á sínum tíma til liðs við sig hóp sérfræðinga til þess að rýna matsskýrsluna og gögn sem henni fylgdu. Guðmundur heitinn Sigvaldason var einn þeirra og gerði hann alvarlegar athugasemdir og benti á að skortur væri á gögnum til þess að hægt væri að meta hættu af völdum eldvirkni og skjálfta. Í skýrslu Guðmundar Sigvaldasonar sagði m.a: "Ítarlegt líkindamat, byggt á bestu fáanlegum gögnum og sérfræðilegri túlkun gagna um hættu af völdum eldvirkni og landskjálfta, er nauðsynleg forsenda ákvarðanatöku á grundvelli umhverfismatsins. Slíkt líkindamat hefur ekki verið gert. Forsendur ákvarðanatöku eru því ekki fyrir hendi." Skýrslu Guðmundar má finna hér. Skýrslur allra sérfræðinganna sem komu að ferlinu fyrir hönd Landverndar eru hér. Tögg Guðmundur Sigvaldason jarðfræðingur skýrslur Kárahnjúkavirkjun Umhverfismat Vista sem PDF