Umsagnir Fréttir Umsögn um þingsályktunartillögu um stofnun Hofsjökulsþjóðgarðs Stjórn Landverndar lýsir yfir stuðningi við þingsályktunartillögu um stofnun Hofsjökulsþjóðgarðs (106. mál á 140. löggjafarþingi). Stjórn Landverndar telur mikilvægt að við undirbúning að stofnun Hofsjökulsþjóðgarðs sé litið til þess að verndarákvæði taki mið að viðmiðum Alþjóðanáttúruverndarsamtakana (IUCN) um þjóðgarða og önnur verndarsvæði líkt og fordæmi eru fyrir í Vatnajökulsþjóðgarði. Öll útfærsla þjóðgarðsmarka og verndarákvæða ætti að fara í víðtækt samráðsferli, í sem bestu samstarfi við hluteigandi rétthafa, þar með talin frjáls félagasamtök á sviði náttúruverndar og útivistar. Umsögn samtakanna má finna hér að neðan. Thingsal_Hofsjokulsthjodgardur_Umsogn Landverndar_30nov2011 LOKA.pdf Tögg 2011 Hofsjökull Hofsjökulsþjóðgarður Umsagnir umsögn Þjóðgarðar þjóðgarður Vista sem PDF